Skipverjinn sem leitað var í dag eftir að tilkynnt hafði verið um mannlausan bát sem fannst í fjörunni í Engey á ellefta tímanum í morgun, fannst látinn um klukkan 14 í dag.
Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni fannst skipverjinn, sem er karlmaður, látinn í sjónum norðan Sæbrautar, skammt frá Sólfarinu, um hálftvöleytið í dag.
Mikil Leit hafði þá staðið yfir eftir að tilkynnt var um mannlausan bát, sem fannst í fjörunni í Engey á ellefta tímanum í morgun. Rannsókn málsins er á frumstigi og ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.