- Auglýsing -
Lögreglan fékk tilkynningu um klukkan hálfníu í gærkvöldi um líkamsárás í Kópavogi. Ungur maður sagði tvo stráka hafa ráðist á hann. Maðurinn fann til eymsla í andliti og var með kúlu á hnakka. Árásaraðilar voru farnir af vettvangi þegar lögreglan kom.
Einnig var tilkynnt um innbrot í skóla í Hlíðahverfi rúmlega fjögur í nótt. Einnig var tilkynnt um tvö innbrot í bíla í miðborginni með stuttu millibili í kringum hálf átta í gærkvöldi. Í báðum tilvikum hafði verðmætum verið stolið.