- Auglýsing -
Karlmaður fannst látinn á Granda í Vesturbæ Reykjavíkur fyrr í dag.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskaði eftir aðstoð björgunarsveita Landsbjargar við leit að manninum og héldu einhverjir tugir björgunarsveitarmanna til leitar. Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg, staðfestir það.
Í samtali við Fréttablaðið staðfestir lögreglan að ekki leiki grunur á að eitthvað saknæmt hafi átt sér stað.