Erlendur ferðamaður lést á mánudaginn á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Húsavík. Maðurinn reyndist smitaður af COVID-19.
Alma Möller landlæknir segir endanlega krufningarskýrslu ekki liggja fyrir en segir miklar líkur á að maðurinn hafi látist vegna COVID-19. Maðurinn var með óhefðbundin einkenni að sögn Ölmu.
„Mér er heimilt í samráði við aðstandendur að segja frá því að við krufningu kom í ljós lungnabólga og það eru miklar líkur á að maðurinn hafi látist af völdum COVID-19,” sagði Alma.
Hún kom þökkum frá aðstandendum hins látna á framfæri til þeirra sem hafa verið þeim innan handar síðan á mánudaginn.