Hafin er vinna við að móta nýja menntastefnu á Íslandi til ársins 2030.
Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra segir að gæðamenntun fyrir alla á öllum skólastigum verði höfð að leiðarljósi í þeirri vinnu sem fram undan er. Eitt af helstu markmiðum nýju menntastefnunnar er að tryggja að allir í skólasamfélaginu líti á skólastarf án aðgreiningar sem grundvöll gæðamenntunar fyrir alla nemendur í takt við alþjóðlegar skuldbindingar um jafnrétti til náms. Lilja kallar eftir breiðu samráði og að sem flestir er málið varða komi að borðinu við stefnumótunarstarfið.
Texti / Egill Páll Egilsson
Mynd / Skjáskot af YouTube