Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, greinir frá því í færslu á Facebook, að hún er komin í tveggja vikna sóttkví.
„Kæru vinir. Vegna COVID-19 smits í nærumhverfi mínu ákvað ég að fara í skimun hjá Íslenskri erfðagreiningu. Ég fékk neikvæðar niðurstöður úr skimuninni í kvöld. Ég verð í sóttkví næstu tvær vikur. Þessi staða er mikilvæg hvatning til okkar allra að gæta áfram sóttvarna. Öll viljum við halda áfram að njóta frelsisins sem fallega íslenska sumarið hefur upp á að bjóða.“
Lilja var stödd á Alþingi í dag, og gæti því farið svo að einhverjir ráðherrar, þingmenn og starfsmenn Alþingis, auk annarra sem Lilja hefur umgengist þurfi í sóttkví.
Fréttablaðið hefur það eftir heimildum að eiginmaður Lilju, Magnús Óskar Hafsteinsson hagfræðingur, sé smitaður af COVID-19.