Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, greinir frá því í færslu á Facebook, að hún er laus úr tveggja vikna sóttkví. Mætti hún í ráðuneytið í morgun, en hefur unnið í fjarvinnu í sóttkvínni. Þakkar hún starfsfólki heilbrigðiskerfisins og Íslenskri erfðagreiningu fyrir störf þeirra.
„Laus úr sóttkví, eftir 14 daga vist í sveitinni og skimanir sem færðu mér ómetanlegt ferða- og athafnafrelsi á ný. Fjarvinna hefur ýmsa kosti, en mikið var gott að mæta í ráðuneytið í morgun. Mitt fólk er allt við góða heilsu og fyrir það erum við þakklát og fögnum frjálsleikanum! Ég vil líka þakka fyrir hversu vel heilbrigðiskerfið okkar hefur sinnt sínum verkefnum. Þá hefur Íslensk erfðagreining og allt það góða fólk heldur betur unnið þrekvirki í þessum málum! Takk!“