Söngkonan Lily Allen og leikarinn David Harbour, sem leikur Jim Hopper í sjónvarpsþáttunum vinsælu Stranger Things, sáust saman á stefnumóti í O2 höllinni í London í gær.
Voru þau á meðal áhorfenda á hnefaleikabardaga Hughie Fury og Alexander Povetkin. Parið lét vel að hvort öðru að sögn sjónarvotta og tóku einhverjir myndir af parinu og birtu á samfélagsmiðlum.
@DavidKHarbour When on earth did this happen!? 🤔 I’m baffled! Hahaaa 🤣 #LilyAllen Thought I knew all the gossip! pic.twitter.com/DxDndVPo1M
— EmmaGee (@GeeEmma20) August 31, 2019
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem parið sést saman opinberlega, en þau sáust saman í West End hverfinu í London fyrr í ágúst.
Lily Allen hangs with ‘Stranger Things’ star David Harbour in London https://t.co/3dTY3CSI4p pic.twitter.com/hOIY81lxDQ
— Page Six (@PageSix) August 6, 2019