Alheimsfegurðardrottningin og lífsþjálfinn Linda Pétusrdóttir er í dag umsvifamikil í heilsugeiranum, rétt eins og forðum daga þegar hún rak Baðhúsið og Sporthúsið. Nú er munurinn sá að hún þarf ekki húsnæði undir umfangsmikinn rekstur. Námskeið hennar eru á Netinu þar sem Linda veitir fjölda manns ráð til að léttast og bæta heilbrigði sitt. Lífið með Lindu Pé er nýtt hlaðvarp hennar. Þar mun hún leggja áherslu á að hjálpa fólki að léttast en sérgrein hennar sem lífsþjálfi snýst einmitt um þyngdartap.
Hún bjó áður í Kanada um árabil með kærasta sínum en er í dag einhleyp og unir sér vel.
„Ég hef það mjög gott í dag. Það er frábært að vera einhleyp. Við mæðgurnar búum á Álftanesinu ásamt hundunum okkar með fallega náttúru í bakgarðinum. Hvað þarf maður meira,“ segir Linda í viðtali við Mannlíf.
Hlaðvarpið kemur út alla mánudaga og aðstoðar hún Íslendinga í því að léttast. Hér má hlusta á fyrsta þáttinn.