Lögregla hafði afskipti af manni í gærkvöldi sem hafði verið til vandræða á hafnarsvæðinu við Klettagarða. Maðurinn hafði komið auga á skemmtiferðaskip við höfnina og reyndi allt sem hann gat til þess að komast um borð í skipið. Segir í dagbók lögreglu að maðurinn hafi fengið tiltal og var honum ráðlagt að sofa úr sér heima fyrir.
Seint í gærkvöldi barst lögreglu tilkynning um hávaða sem barst frá íbúð í miðbænum. Þegar lögregla mætti á vettvang „kom í ljós að þar var listamaður í góðu stuði við vinnu sína að hlusta á tónlist,“ segir í dagbókinni en lofaði hann að lækka í sér eftir heimsókn lögreglu. Ungmenni köstuðu grjóti í rúður í Kópavogi í nótt. Á vettvangi kom í ljós að ein rúða var brotin en krakkarnir voru á bak og burt.
Íbúi Kópavogs gleymdi sér við eldamennsku í gærkvöldi. Ekkert tjón varð og íbúðin reykræst. Þá barst lögreglu tilkynning um krakka að reykja kannabis í miðbænum. Voru þau hvergi sjáanleg þegar lögregla mætti á vettvang.