Nú er það orðið deginum ljósara að engin Ljósanótt verður haldin þetta árið í Reykjanesbæ, eins og flestir bjuggust reyndar við.
Stýrihópur hátíðarinnar tók þessa ákvörðun á fundi í morgun, en hátíðin átti að standa yfir dagana 2. til 5. September; að sjálfsögðu var ákvörðunin tekin í ljósi ástandsins á Íslandi vegna Covid 19 og þeirra samkomutakmarkana sem í gildi eru.
Taldi stýrihópurinn rétt að Reykjanesbær geri það sem í hans valdi stendur til að hefta óþarfa útbreiðslu veirunnar á meðan álag er gífurlegt á heilbrigðisstofnunum og á annarri grunnþjónustu líkt og raunin er; kemur þetta fram á vef Reykjanesbæjar.
Augljóslega er ákvörðunin þungbær fyrir fjölmarga aðila enda mikill undirbúningur átt sér stað á síðustu vikum og mánuðum fyrir hátíðina; jafnt á vegum Reykjanesbæjar, fyrirtækja, félaga og einstaklinga:
„Stýrihópur færir öllum þessum aðilum ómældar þakkir fyrir þeirra mikilvæga framlag og hvetur þá sem og aðra íbúa bæjarins til að halda í bjartsýni og gleði eins og kostur er,“ segir í tilkynningu frá Reykjanesbæ.