Lögregla handtók karlmann í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöldi. Maðurinn hafði látið illa og ónáðað fólk ítrekað og var hann undir áhrifum fíkniefna. Kalla þurfti til lögreglu í tvígang á hótel og spilasal til þess að vísa fólki út sem var óvelkomið. Létu þau sér segjast eftir seinni afskipti lögreglu og héldu leiðar sinnar.
Athugull einstaklingur hafði samband við lögreglu síðar um kvöldið vegna tveggja einstaklinga sem hann hélt að væru að brjótast inn á byggingasvæði. Þegar lögregla kom á vettvang kom í ljós að mennirnir höfðu hreinlega villst en báðir voru undir áhrifum fíkniefna. Ölvaður maður fékk astoð lögreglu eftir að hafa verið til óþurftar þar sem hann var. Lögregla keyrði manninn til síns heima. Þá sinnti lögregla umferðareftirliti. Fjórir ökumenn vorur stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum vímuefna. Tveir voru handteknir vegna líkamsárásar.