Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ævari Annel Valgarðssyni, 20 ára. Ævar er 174 sm á hæð, grannvaxinn og með dökkt hár.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Ráðist var á Ævar um síðustu helgi líkt og Mannlíf greindi frá. Þá gekk MMA-bardagamaðurinn Guðlaugur Þór Einarsson í skrokk á honum og birti af því myndband á Facebook-síðu sinni.
Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Ævars, eða vita hvar hann er niðurkominn, eru vinsamlegast beðnir um að hafa tafarlaust samband við lögregluna í síma 112.