Lögreglan birti meðfylgjandi mynd á Facebook-síðu sinni og óskar eftir að ná tali af manninum á myndinni.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi mynd vegna máls sem hún hefur til rannsóknar, og er hann vinsamlegast beðinn um að hafa samband við lögreglustöðina á Hverfisgötu 113-115 í Reykjavík í síma 444 1000. Þetta kemur fram í færslu á Facebook-síðu Lögreglunnar.
Ef einhverjir þekkja til mannsins, eða vita hvar hann er að finna, eru hinir sömu einnig beðnir um að hringja í lögregluna, en upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið [email protected] eða einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Uppfært: Maðurinn sem lögreglan óskaði eftir að tala við er fundinn.