Lögreglukonan sem smitaðist af COVID-19 við lögreglustörf síðasta föstudag segir frá því í opinni færslu á Facebook að hún hafi jákvæðnina að vopni.
Lögreglukonan Íris Heimisdóttir starfar á Suðurlandi og er ein þeirra 16 lögreglumanna sem voru sendir í sóttkví eftir að hafa haft afskipti af erlendum karlmönnum í síðustu viku. Mennirnir komu til landsins fyrr í mánuðinum og reyndust smitaðir af COVID-19.
Sýni voru tekin úr öllum þeim sem þurftu í sóttkví vegna málsins og í ljós koma að Íris hafði smitast.
„Hæ Hó Jibbý Jei og allt það.. kannski eitthvað minna af þessu Jibbý jei samt,“ skrifar Íris í færslu sína í gær, á þjóðhátíðardaginn, á öðrum degi í einangrun.
Í færslunni lýsir hún einkennunum. „Hálsbólga, slím í hálsi sem nær niður í lungu, raddleysi ásamt beinverkjum.“
Í færslu sinni segir Íris að hún muni seint gleyma þessum þjóðhátíðardegi og að hún hafi jákvæðni að vopni. „Þessum Þjóðhátíðardegi gleymi ég seint þar sem ég fagna honum ekki í faðmi fjölskyldu og vina heldur með sjálfri mér og kórónuveirunni. Henni var ekki boðið á þennan fögnuð en hún mætti samt. Eina vopnið sem ég ber í þessari baráttu er jákvæðnin. Nú reynir á.. Áfram ÉG!“
Færslu Írisar má lesa hér fyrir neðan en hana endar hún á að benda á að lögreglumenn eru enn samningslausir.
Sjá einnig: Einn úr hópi lögreglumannanna smitaðist