Þingmaðurinn Páll Magnússon hefur líklega yfirgefið hið pólitíska svið, í bili að minnsta kosti.
Páll var oddviti Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi á kjörtímabilinu sem nú fer bráðum að ljúka, enda kosningar í haust.
Nýlega kom fram tillaga um að Páll myndi taka heiðurssæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi fyrir þingkosningarnar í haust; tillagan var felld með miklum meirihluta í kjördæmisráði flokksins.
Fyrrum fréttamaðurinn Páll er fyrsti þingmaður kjördæmisins; hann gaf kost á sér í fyrsta sæti í prófkjöri flokksins í vor en dró framboð sitt til baka og hefur sagt að hann hefði í raun ákveðið að hætta sem alþingismaður fyrir allnokkru síðan; hann hafi þó viljað bjóða sig fram ef hann skipti um skoðun.
Tillögu um heiðurssæti til handa Páli var ekki vísað frá en hún var eins og áður sagði felld með miklum meirihluta.
Samkvæmt heimildum Mannlífs er ekki loku skotið fyrir að Páll yfirgefi Sjálfstæðisflokkinn í kjölfar hinnar afgerandi höfnunar. Sömu heimildir herma að Páll sé opinn fyrir því að ganga til liðs við annan stjórnmálaflokk, en þó þyki líklegra að hann muni hreinlega hætta endanlega í pólitík og snúa sér að einhverju allt öðru.
Heiðurssætið sem haft var af Páli mun þó engin aukvisi skipa – Björn Bjarnason fyrrum ráðherra sem flestir tengja líklega við höfuðborgina en ekki suðurland; en á það má þó benda að Björn er með lögheimili sitt skráð á bænum Kvoslæk II í Fljótshlíð og býr á víxl þar og í hlíðahverfinu í Reykjavík.