Lögreglu barst tilkynning um slys þar sem ungmenni hafði skorið sig. Múrsteini hafði verið kastað í gegnum rúðu og rúðubrotin skáru ungmennið sem sat fyrir innan. Málið er í rannsókn.
Ökumaður bifreiðar var stöðvaður í umferðinni á stolinni bifreið. Tveir voru í bifreiðinni og gáfu þeir mismunandi og ósamræmanlegar sögur um af hverju þeir væru í bifreiðinni. Þeir voru handteknir og vistaðir í klefa vegna málsins. Báðir reyndust einnig vera með fíkniefni meðferðis.
Tilkynnt var um krakka að kveikja í og setja flugelda í ruslatunnu í Mjóddinni. Eldur kom upp í ruslatunnunni en hann var slökktur með slökkvitæki.
Ökumaður var stöðvaður grunaður um að vera undir áhrifum lyfja í umferðinni. Ökumaðurinn með ungt barn í bifreiðinni. Hann var látinn laus frá lögreglu að blóðsýnatöku lokinni. Annar ökumaður var stöðvaður í umferðinni. Hann hafði verið sviptur ökuréttindum og var undir áhrifum fíkniefna. Laus að blóðsýnatöku lokinni.
Ökumaður ók á vegfaranda og stakk síðan af frá vettvangi. Lögreglan brá skjótt við og náði manninum. Hann reyndist hann ölvaður og var vistaður í fangaklefa þar til hægt verður að taka skýrslu af honum.