- Auglýsing -
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir Sebastian Kozlowski, 38 ára og biðlaði til almennings og þeirra sem gætu gefið upplýsingar um ferðir Sebastians að láta lögreglu vita hvar hann væri niðurkominn.
Þetta kom fram á Facebook síðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og bendir lögreglan á að hægt sé að koma ábendingum til lögregluyfirvalda í síma embættisins, 444 1000.
Þá er einnig hægt að koma upplýsingum á framfæri á netfang lögreglunnar, [email protected]
Sebastian er þó fundinn og þakkar lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fyrir veitta aðstoð.