Í nótt hvessir mikið og snemma í fyrramálið má víða búast við austan roki eða ofsaveðri, en jafnvel fárviðri í vindstrengjum á suðurhelmingi landsins. Víða er útlit fyrir slyddu eða snjókomu og verður úrkoman mest á sunnan- og austanverðu landinu. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vedur.is.
Þar segir að í dag og kvöld muni bæta smám saman í vindinn. Þá má búast við austan 10-23 m/s, hvassast syðst á landinu og snjókoma þar. Þá verður frost á bilinu 1 til 7 stig. Norðaustanlands verður hægur vindur í allan dag og kaldara.
Seinnipartinn á morgun snýst í sunnan hvassviðri sunnantil landinu með rigningu á láglendi þar sem hefur hlýnað vel uppfyrir frostmark. Þá verður hinsvegar áfram austan rok og ofankoma um landið norðanvert með hita nálægt frostmarki.
Lægja mun talsvert á landinu annað kvöld og þá dregur úr úrkomu.