Lögreglu á Suðurlandi barst í morgun tilkynning um mann sem var vopnaður boga og örvum á labbi við Tryggvatorg á Selfossi. Eðlilega var lögregla látin vita um leið og sást til mannsins; lögreglumenn fóru strax á vettvang og fundu manninn fljótt. Fylgst var með ferðum hans nokkra stund án hans vitneskju en hann síðan handtekinn á Árvegi til móts við Hörðuvelli án mótþróa.
Maðurinn lagði niður vopn sín og verjur um leið og skorað var á hann að gera slíkt; var færður í fangahús á Selfossi og bíður þess nú að verða yfirheyrður um ferðir hans og fyrirætlanir í nótt; yfirheyrsla fer fram strax og ástand mannsins verður betra og skýrara.
Nokkur viðbúnaður var viðhafður vegna atviksins, sérsveit ríkislögreglustjóra sett í viðbragðsstöðu og sjúkraflutningamenn á Selfossi einnig eins og verklagsreglur gera ráð fyrir þegar fengist er við vopnaða menn.
Málið er til rannsóknar hjá rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi.