- Auglýsing -
Íslenskur karlmaður á fimmtugsaldri fannst látinn á bak við verslunarhúsnæði á Selfossi fyrr í vikunni. Ekki er talið að andlátið hafi orðið með saknæmum hætti að sögn lögreglu.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi. Rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi er með málið til rannsóknar. Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið.