Lögreglunni barst tilkynning um eld í bifreið skömmu fyrir klukkan hálf átta í gærkvöldi. Bíllinn stóð á bílastæði í Vesturbæ Reykjavíkur og mætti slökkvilið á vettvang. Eldurinn átti upptök sín í vél bifreiðarinnar og var hann fjarlægður af vettvangi að slökkvistarfi loknu.
Ekið var á níu ára pilt í Garðabæ í gær. Pilturinn var á hjóli og fann til eymsla í hnjám eftir slysið. Sjúkrabíll mætti á staðinn en fór pilturinn með móður sinni af vettvangi.
Þá barst tilkynning um rán á veitingastað í Grafarvogi í gærkvöldi. Karlmaður tók reiðufé úr peningakassa og ógnaði starfsmanni með hníf. Hann hljóp þá út með peningana og hvarf. Lögregla rannsakar nú málið
Ung kona missti stjórn á bíl sínum í Mosfellsbæ í gærkvöldi og ók út af veginum. Fann hún til í öxl og var flutt með sjúkrabíl á Bráðadeild.
Lögregla stöðvaði tvo bílstjóra í gærkvöldi. Annar þeirra reyndist án ökuréttinda en hinn er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.