Helstu tíðindi lögreglu frá klukkan 05:00 til klukkan 17:00.
Lögreglustöð 1 – Miðbær, Vesturbær, Austurbær og Seltjarnarnes
Tilkynnt um innbrot í geymslur í hverfi 101, málið er í rannsókn.
Óskað eftir aðstoð lögreglu á hótel í miðbænum, en þar var aðili í annarlegu ástandi sem neitaði að fara. Lögregla fór á vettvang og vísaði manninum út.
Tilkynnt um aðila í annarlegu ástandi sem neitaði að yfirgefa vettvang. Lögregla fór á vettvang og ræddi við aðilann, hann gekk sína leið eftir stutt spjall.
Tilkynnt um þjófnað á verkfærum, lögregla fann verkfærin stuttu seinna í öðru verkefni. Verkfærunum skilað til eiganda og málið komið í rannsókn.
Tilkynnt um aðila í annarlegu ástandi. Lögregla fór og ræddi við aðilann, honum ekið heim til sín.
Tilkynnt um innbrot í bílskúr, málið er í rannsókn.
Tilkynnt um þjófnað í verslun, tekin vettvangskýrsla af geranda á vettvangi.
Aðili handtekinn vegna gruns um sölu og dreifingu fíkniefna. Hann vistaður í klefa í þágu rannsóknar.
Lögreglustöð 2 – Hafnarfjörður og Garðabær
Skráningarmerki fjarlægð af tveimur bifreiðum. Tilkynnt um eignaspjöll, málið er í rannsókn.
Lögreglustöð 3 – Kópavogur og Breiðholt
Tilkynnt um mann í annarlegu ástandi, lögregla aðstoðaði hann við að koma sér heim.
Tilkynnt um umferðarslys, þar sem ekið var á skilti.
Tilkynnt um umferðarslys þar sem ekið var á ljósastaur.