Lögreglunni barst tilkynning um slagsmál í miðbæ Reykjavíkur í gær. Þegar lögreglan kom á vettvang höfðu mennirnir látið sig hverfa af svæðinu. Stuttu síðar var tilkynnt um aðila sem hafði verið stunginn í miðborginni, kom í ljós að það var brotaþoli í fyrrnefndum slagsmálum. Maðurinn var fluttur á slysadeild og lögregla rannsakar nú málið.
Áverkar eru ekki taldir alvarlegir.
Þá var maður handtekinn vegna skemmdarverka. Hafði hann verið tilkynntur fyrr sama dag vegna háttsemi sinnar en lét hann illa. Maðurinn var í annarlegu ástandi og gisti í fangaklefa lögreglunnar.
Fjórir ökurmenn voru stöðvaðir í gærkvöldi og í nótt. Allir eru þeir grunaðir um að hafa ekið ýmist undir áhrifum áfengis eða vímuefna.