Maðurinn sem leitað hefur verið að í Stafafellsfjöllum frá því í gærkvöldi er fundinn heill á húfi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi sem þakkar öllum þeim sem aðstoðuðu við leitina.
„Hann er nú á leið til byggða með björgnarsveitarmönnum. Lögreglan á Suðurlandi þakkar leitarmönnum og öllum þeim sem aðstoðað hafa við verkefnið kærlega fyrir þeirra framlag. Á annað hundrað leitarmanna voru við leit og fleiri á leið á vettvang til aðstoðar. Þeim hefur nú verið snúið frá og eru væntanlega á heimleið í dag,“ segir í tilkynningunni.
Allar björgunarsveitir í Austur-Skaftafellssýslu og á Austurlandi voru kallaðar út í gær til að leita að manninum. Þá var þyrla Landhelgisgæslunnar nýtt til leitar og notast við bæði dróna og sporhunda.