Hér koma nýjustu tíðindi frá lögreglunni.
Stöð 1 Austurbær-Miðbær-Vesturbær-Seltjarnarnes
Tilkynning um hávaða í vesturbæ. Húsráðandi lofaði að lækka í tónlistinni.
Tilkynnt um innbrot í geymslur í Gerðunum. Þrír aðilar handteknir á vettvangi grunaðir um innbrotin. Vistaðir í þágu rannsóknar. Þýfi skilað til eiganda. Málið komið til rannsóknar.
Ökumaður stöðvaður í akstri grunaður um ölvun við akstur. Blés töluvert yfir mörkum. Hefðbundin afgreiðsla, blóðsýnataka og ökumaður laus frá lögreglu að því loknu.
Lögregla aðstoðaði við að fjarlæga óvelkominn mann í stofnun í austurbæ en maðurinn hafði komið sér þar fyrir og stolið hreinsunar sprytti en hann neytti. Viðkomandi kom sér í burtu eftir afskipti lögreglu. Engar kröfur.
Lögregla hefur afskipti af ökumanni er sat undir stýri í kyrrstæðri bifreið er var í gangi. Ökumaður færður á stöð og blóðsýni tekið. Laus frá lögreglu að því loknu. Vitni að akstri gáfu sig fram.
Lögregla hafði afskipti af manni er svaf í ruslatunnugeymslu í Túnunum. Reyndist vera með hníf á sér og var hnífurinn haldlagður og verður maðurinn kærður fyrir brot á vopnalögum.
Lögregla hafði afskipti af manni er var til vandræða á Laugavegi. Vísað í burtu.
Stöð 2 Hafnarfjörður-Garðbær-Álftanes
Ekið var á hund á Kaldárselsvegi. Hundurinn fluttur á dýpaspítala í Garðabæ. Hundurinn líklegast fótbrotinn og eigandi látinn vita.
Tilkynnt var um sinubruna í Garðabæ við strandblakvöllinn. Slökkvilið kallað út er slökkti í sinunni.
Stuttu síðar kviknar annar sinueldur við Flataskóla en mun minni og fljótt slökktur af slökkviliði.
Stöð 3 Kópavogur og Breiðholt
Óvelkomnum vísað í burtu frá sundstað í Breiðholti. Ætlaði í sund án þess að borga eða hafa sundfatnað.
Innbrot í geymslur Í Breiðholti og rafmagnshjóli stolið meðal annars. Málin í rannsókn.
Tilkynnt um skemmdarverk á bifreið í bílakjallara í Kópavogi.
Tilkynnt um sinubruna í efra Breiðholti. Vegfarendur slökktu eldinn en slökkvilið kom á vettvang til að tryggja að ekki kviknaði aftur í.
Stöð 4 Grafarvogur-Mosfellsbær-Árbær
Skóm og Apple airpods stolið úr fatahengi í skóla í Grafarvogi. Málið í rannsókn.