Nýtt tölublað Mannlífs er komið út. Athafnamaðurinn Jón Ásgeir Jóhannesson er í forsíðuviðtali blaðsins og þar fer hann yfir hæðir og lægðir í ferli sínum sem íslenskur kaupmaður og fjárfestir. Hann deilir með lesendum ævintýri sínu og föður hans heitinum, við stofnun lágvörukeðjunar Bónus. Jón Ásgeir missti gott sem allt í hruninu – en loks er farið að lygna.
Neytandinn er á sínum stað og kastar ljósi á gríðarlegan verðmun á flatbökum hjá íslenskum veitingastöðum. Pistlar, baksýnisspegillinn og fleira áhugavert efni sem vert er að lesa.
Nálgast má eintak af blaðinu í verslunum Bónus eða hér á vefnum.