Már Gunnarsson og Iva voru að gefa frá sér nýtt lag og myndband. Lagið ber nafnið Vinurinn vor og fjallar um vorið, hinar björtu sumarnætur á Íslandi og hve gott það er að komast í gegnum veturinn.
Lagið samdi Már sjálfur og texti er eftir Engil Bjart Einisson.
Verkefnið segir Már hafa verið í vinnslu síðan í júní síðastliðnum og segist hann afar glaður að geta loks deilt því með þjóðinni.
„Í upphafi myndbands er stutt leikin sena þar sem við setjum upp í skemmtilegan búning hvernig sjáandi einstaklingar eiga til að koma fram við blinda,“ segir Már.
Enginn annar en Laddi leikur í myndbandinu, en hann fer með hlutverk skilningslauss afgreiðslumanns.
Hann segir þau vonast til þess að lagið og myndbandið létti landsmönnum síðustu skrefin í gegnum þennan langa og dimma covid-vetur inn í sumarið.
Hér að neðan má hlíða á nýja lag þeirra Más og Ivu og sjá tónlistarmyndbandið.