Þriðjudagur 24. desember, 2024
2.8 C
Reykjavik

Margrét ósátt við Sunnulækjarskóla: „Þetta er hópnauðgunarvídjó sem ungmennin horfa á með félögum“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Margrét Pétursdóttir er ekki sátt við stjórnendur Sunnulækjaskóla, og ritar pistil um ósætti sitt, sem ber yfirskriftina:

Opið bréf til Sunnu­lækja­skóla á Sel­fossi

„Kæru skólastjórnendur. Það hefur borist mér til eyrna að framundan verði nýtt námsefni fyrir 12 ára börnin í íslensku sem mun standa yfir í 8 vikur. Endilega leiðréttið og vinsamlegast svarið örfáum spurningum.“

Spyr:

„Er það rétt að þið ætlið að sýna þættina Brot fyrir ungmenni í 6.bekk?

Er það samkvæmt ráðum sérfræðinga eins og sálfræðinga og uppeldismenntaðra sem þið gerið það?

- Auglýsing -

Vitið þið að þetta efni er ekki talið vera svo ungum börnum gott áhorfsefni að Netflix í Evrópu setur 16 ára aldurstakmark eða kjósið þið að líta framhjá því?

Vitið þið eitthvað um ofbeldiskúltúr?“

Heldur áfram:

- Auglýsing -

„Vitið þið að þó að krakkarnir eigi að vita að þetta sé leikið efni þá fara nkl sömu viðbrögð í gang í heilanum og ef það væri það ekki, þess vegna virka hryllingsmyndir og spennumyndir?

Vitið þið að þetta er hópnauðgunarvídjó sem ungmennin horfa á með bekkjarfélögum sínum. Ekki horfa, hlusta og sjá aðra horfa á það.

Það á líka að horfa á myndband af þolanda hópnauðgunarinnar af þessari sömu nauðgun lýsa nauðguninni.“

Margrét segir að „börn sem eru 12 ára eiga líka að horfa á íslenskt fólk í sjónvarpinu lýsa kerfisbundnum nauðgunum á ungum drengjum og grófu líkamlegu ofbeldi gegn börnum sem framið er af fólkinu sem á að sýna þeim umhyggju?

Er það rétt að sumir foreldrar í árgangnum hafa gert athugasemdir við námsefnið en það skiptir ekki máli því íslenskuteymið nýtur stuðnings deildarstjóra og skólastjóra og að kennararnir ætla að hafa auga með þessum viðkvæmu nemendum; nemendum sem eru of viðkvæmir til þess að hlusta á stúlku gráta, öskra og biðja sér vægðar á meðan henni er hópnauðgað þegar þau eru 12 ára?“

Hún endar pistil sinn á þessum orðum:

„Hafið þið hugmynd um börn í þessum árgang sem hafa orðið fyrir trauma og gerið þið ykkur grein fyrir áhrifum þessa áhorfs á þau? Ég bið einlæglega um umfjöllun um þetta mál og önnur þau verkefni sem valin eru til að setja á borð ungmenna í skólum landsins. Allt á sinn tíma og það er vel þess virði barnanna vegna að Barnavernd komi að þessu máli.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -