Matthilda Maria Eyvindsdóttir hundaeigandi syrgir sárt hundinn Svenna sem dó fyrir helgi. Hinn hundurinn á heimilinu hefur legið í bæli þess látna allan tímann frá því Svenni fór.
Frá þessu segir Matthilda í hópi hundaeiganda, Hundasamfélagið, á Facebook. „Besti vinurinn, hann Svenni, kvaddi á föstudaginn. Mikil sorg og söknuður hjá okkur, en þó sennilega mest hjá hinum hundinum, hann hefur legið í bælinu hans Svenna síðan. Það brýtur í mér hjartað að sjá hann svona. Hann fær alla þá ást, umhyggju og athygli sem hann þarf, vonandi verður hann ekki mjög lengi að jafna sig, elsku karlinn,“ segir Matthilda.
Fjölmargir hundaeigendur senda Matthildu samúðarkveðjur eftir hina sorglegu færslu í hópnum. Óli Hilmar nokkur er einn þeirra. „Þetta er erfitt. Tíminn læknar. Gangi þér vel,“ segir Óli. Sigrún nokkur er á svipuðum slóðum. „Æi, elsku kallinn… hann syrgir. Innilegar samúðarkveðjur til ykkar,“ segir Sigrún.
Halldóra Bergsdóttir tekur í sama streng. „Knús til ykkar vegna fráfalls Svenna. Vonandi nær elsku kallinn sér fljótt,“ segir Halldóra.
Guðbjörg Guðmundsdóttir segir að þunglyndi hins hundsins sé eðlilegt vegna missins. „Það er nú ekki svo auðvelt að fá hund núna en þunglyndi er auðvitað hjá honum annað væri ekki eðlilegt,“ segir Guðbjörg.