- Auglýsing -
Tónlistarmaðurinn Flóni er heldur betur á blússandi siglingu um þessar mundir en platan hans Floni 2 kom út þann 31. janúar síðastliðinn á streymisveitum Spotify og hefur nú þegar náð yfir 800.000 spilunum.
Floni 2 var tekin upp í 101derland-hljóðverinu í sumar og fylgir eftir hans fyrstu plötu í fullri lengd.
Flóni skaust hratt upp á stjörnuhimininn með sinni fyrstu plötu, Floni, en þar blandaði hann saman mjúku R&B og kraftmiklum trapptónum. Með þessa óvenjulegu samsetningu í bakgrunni hreif þessi tvítugi rappari fólk með sér og hefur tónlist hans fengið yfir 3.000.000 spilanir á Spotify, alls ekki slæmt það!