Meghan Markle hertogaynja er sögð áhrifamesta konan 2019 hvað klæðaburð og tísku varðar. Breskir fréttamiðlar segja frá því að tölur úr tískuleitarvélinni Lyst hafi leitt í ljós að klæðnaður Meghan veiti mörgum innblástur.
Niðurstöður Lyst sýndu að fjöldi kvenna keypti sér alveg eins eða sams konar flíkur og Meghan klæddist á þessu ári.
Hér sjáum við nokkur dress sem hún hefur klæðst undanfarið.
Þessi samfestingur sem Meghan klæddist er frá merkinu Everlane. Mynd / EPAMeghan klæddist þessum flotta kjól frá Parosh í október og bar tösku frá Montunas. Mynd / EPAHér má sjá Meghan í Club Monaco-kjól. Mynd / EPAÞessi kjóll er frá kanadíska merkinu Nonie en Meghan klæðist gjarnan kjólum í þessu sniði. Mynd / EPAMeghan klæddist þessum maxi-kjól úr smiðju ástralska hönnuðarins Martin Grant einn daginn meðan á heimsókn hennar til Suður-Afríku stóð nú í september. Mynd / EPAFljótlega eftir að Meghan klæddist þessum fjólubláa kjól frá Aritzia seldist hann upp. Mynd / EPAMeghan klæddist dökkblárri kápu og bar hatt frá Philip Treacy fyrr í mánuðinum. Mynd / EPA