Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í gær og í nótt hendur í hári tvegga manna sem sögðust vera smitaðir af Covid-19. Menninir gistu báðu í fangageymslu lögreglunnar í nótt.
Barst lögreglunni tilkynning um ferðir annars mannsins í Austurbæ á tólfta tímanum í gærkvöldi og var hann sagður ofurölvi. Þegar lögregla mætti á staðinn átti viðkomandi í erfiðleikum með að gera grein fyrir sér og hvar hann byggi og sagðist vera smitaður af Covid-19. Seinna sagði hann að þetta væri spaug. Hinn manninn handtók lögreglan í miðbæðnum að ganga tvö í nótt, vegna gruns um eignaspjöll, brot á lögreglusamþykkt og brot á vopnalögum. Líkt og sá fyrri sagðist hann vera með Covid-19, en ekkert staðfestir að svo sé.