Íþróttafréttamaðurinn Gerard Romero segir að argentínski fótboltasnillingurinn Lionel Messi hafi snúist hugur og ákveðið að lengja ekki dvöl sína hjá Paris St-Germain í Frakklandi.
Eftir að hafa unnið heimsmeistaratitilinn með Argentínu á HM í desember er Messi sagður líta öðrum augum á líf sitt og feril; gildandi samningur hans við PSG rennur út næsta sumar.
Þegar eru í gangi vangaveltur um að Messi muni snúið aftur heim til Barcelona, en ekki hefur fengist staðfest að hann fari þangað eftir þetta tímabil, en góðar líkur eru þó taldar á því.
Þótt Messi sé orðinn 35ára gamall er hann enn í fantaformi eins og sást hvað best á HM í Qatar.