- Auglýsing -
Þrír Íslendingar létust vegna Covid-19 á Landspítalanum síðasta sólarhring. Aðstandendum hinna látnu er vottuð samúð í tilkynningu spítalans.
Um helgina létust tveir vegna veirunnar skæðu og er heildarfjöldi látinni hér á landi því kominn upp í 23 samanlagt frá upphafi faraldursins. Í fyrstu bylgjunni létust 10 manns og í þeirri þriðju sem nú gengur yfir hafa þrettán fallið.