Orðrómur
Guðmundur Gunnarsson, fyrrverandi bæjarstjóri Ísafjarðar, hefur afhjúpað ýmislegt eftir að honum var bolað út úr stjórnmálum á Ísafirði. Hann fer gjarnan mikinn á Twitter og varpar ljósi á viðhorf sem flestir töldu að væru horfin.
Hann tók Miðflokk Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar fyrir nýverið og sagði stutta sögu af símtali sem ungur maður hefði fengið frá Miðflokksmanni: Fyrir síðustu kosningar fékk þrítugur maður símtal frá Miðflokknum. Erindið var að spyrja hann hvort konan hans væri til í að taka sæti á lista flokksins. Það gengi nefnilega alveg bölvanlega að fá konur um borð. Ekkert lýsir betur tímaskekkjunni sem Miðflokkurinn er.
Sagnfræðingurinn Stefán Pálsson skrifar athugasemd og bætir við: Frekar ósmekklegt. Voru þeir ekki örugglega búnir að fá grænt ljós frá pabba hennar fyrst?