Samkvæmt dagbók lögreglu var töluvert um ölvun á fólki í nótt og hafði lögreglan talsverð afskipti af fólki í annarlegu ástandi.
Tilkynnt var um innbrot og þjófnað í tölvuverslun í hverfi 105 í Reykjavík. Þar hafði bíræfinn þjófur brotið rúðu og farið inn um hana og stolið verðmætum í versluninni.
Lögreglan handtók mann í miðbænum en hann var í annarlegu ástandi. Hafði hann verið í slagsmálum og fór ekki að fyrirmælum lögreglunnar. Var hann látinn gista fangageymslu lögreglunnar sökum ástandsins.
Fleiri einstaklingar voru í annarlegu ástandi í nótt en til að mynda var bifreið stöðvuð í miðbænum vegna gruns um að ökumaður þess væri undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Þá handtók lögreglan mann sem var í annarlegu ástandi í Garðabænum. Var hann grunaður um eignarspjöll og hótanir. Enn einn maður í annarlegu ástandi var handtekinn en hann hafði gengið fyrir bifreiðar á Reykjanesbrautinni í Hafnarfirði. Neitaði maðurinn að gefa lögreglu upplýsingar um nafn og kennitölu. Var hann vistaður í fangageymslu lögreglunnar vegna ástandsins.
Aukreitist hafði lögreglan afskipti af ungum manni sem kastaði af sér vatni á Lækjartorgi. Verður hann kærður fyrir brot á lögreglusamþykkt Reykjavíkurborgar.