Mjög rólegt hefur verið hjá lögreglu þar sem af er degi, en þetta er helst:
Einn karlmaður er í haldi lögreglu grunaður um að hafa brotist inn í nokkur fjölbýlishús í Breiðholti í nótt og morgun.
Talsverðar skemmdir urðu á húsnæðum vegna verknaðaraðferðarinnar. Karlmaðurinn var handtekinn á einum innbrotsvettvanganna. Lagt hefur verið hald á einhverja muni úr þessum innbrotum og nú er unnið í því að koma þeim til skila til eigenda sinna.
Laust fyrir kl.17:00 í dag varð þriggja bifreiða árekstur á Sæbraut/Dalbraut. Minniháttar slys urðu á ökumönnum og farþegum samkvæmt fyrstu upplýsingum. Ekki er ljóst hvort slösuðu voru fluttir til aðhlynningar á slysadeild þar sem vinna er enn í gangi á vettvangi.
Miklar skemmdir urðu á ökutækjum og sumar þeirra óökufærar. Nánari upplýsingar um slysið verða sendar um leið og þær berast.