Í gær var útlit fyrir að ófært yrði á götum snemma dags á höfuðborgarsvæðinu en á vef Veðurstofunnar kemur fram að höfuðborgarsvæðið hafi sloppið ágætlega hvað snjókomu varðar.
„Það hefur gengið á með éljum um landið sunnan- og vestanvert í nótt en það safnaðist ekki mikið af snjó á höfuðborgarsvæðinu. Éljagangurinn heldur áfram fram eftir degi, en skýjað af háskýjum og þurrt norðaustantil á landinu,“ segir í hugleiðingur veðurfræðings um daginn í dag.
Þar segir einnig: „Í nótt og á morgun kólnar heldur og gengur í hvassa norðaustanátt með snjókomu, fyrst á Vestfjörðum og með norðurströndinni, en hægari vindur syðst á landinu fram á kvöld og um sunnanvert landið rofar einnig heldur til.“
Veðurhorfur á landinu:
Suðlæg átt 5-13 og lægir í kvöld. Gengur á með éljum en lengst af bjartviðri á norðaustantil.
Gengur í norðaustan 13-18 m/s á morgun en hægari syðst á landinu fram á kvöld. Snjókoma með köflum, en léttir til um sunnanvert landið.
Frost 0 til 8 stig, kaldast inn til landsins, en frostlaust við suðurströndina í dag.