Mistök í snertilendingu er hugsanleg skýring á flugslysinu við Múlakot í Fljótshlíð. Flugmaður vélarinnar hafði framkvæmt snertilendingar á svæðinu skömmu fyrir slysið. Þetta hefur Vísir eftir Sveini Kristjáni Rúnarssyni, yfirlögregluþjóni á Suðurlandi.
Snertilending er tegund af æfingarlendingu. Það er þegar loftfar, venjulega flugvél, fær leyfi til að hefja flugtaksbrun án þess að stöðva vélina. Líklegt er að vélin hafi verið að koma inn til lendingar þegar slysið varð. Rannsóknarvinnu á vettvangi lauk í morgun. Að minnsta kosti einn var vitni af því þegar flugvélin skall niður og hefur verið rætt við hann sem og aðstandendur þeirra sem voru í flugvélinni. Þá hefur flak flugvélarinnar verið flutt í rannsóknarskýli í Reykjavík.
Laust eftir 20:30 í gærkvöldi barst tilkynning um flugslys nálægt flugvellinum við Múlakot í Fljótshlíð. Eldur var þá laus í flugvélinni. Fjölmennt lið lögreglu, slökkviliðs og sjúkraflutninga Heilbrigðisstofnun Suðurlands, ásamt tveimur þyrlum Landhelgisgæslunnar, fóru á staðinn. Alls voru fimm aðilar í flugvélinni. Þrír létust í slysinu og tveir voru fluttir alvarlega slasaðir með þyrlu Landhelgisgæslunnar á sjúkrahús. Flugvélin sem um ræðir var í einkaeigu. Samkvæmt tilkynningu lögreglu er líðan þeirra slösuðu stöðug.
Rannsóknardeild Lögreglustjórans á Suðurlandi fór með rannsóknina og naut aðstoðar Rannsóknarnefndar samgönguslysa og tæknideildar Lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu. Viðbragðsteymi Rauðakross Íslands var sent á vettvang til að veita vitnum að atvikinu sálrænan stuðning.