Móðir þriggja ára stúlku sem smitaðist af E.coli í Efstadal í júní hvetur þá sem geta til að gefa blóð.
„Blóðgjöf er lífgjöf,“ skrifar Áslaug Fjóla Magnúsdóttir á Facebook. Áslaug er móðir Anítu Katrínar, tæplega þriggja ára stúlku sem smitaðist af E.coli í Efstadal í júní og hlaut í kjölfarið nýrnabilun.
Aníta hefur þurft að þiggja blóð þrisvar sinnum eftir að hún greindist. Áslaug er þeim sem gefa blóð afar þakklát. „Við værum ekki með hana á batavegi ef ekki væri fyrir blóðgjöf,“ skrifar Áslaug.
Hún hvetur alla þá sem geta til að gefa blóð. „Allir sem tök hafa, gefið blóð. Það er mikil vöntun á blóði í A og O flokki.“
Færslu Áslaugar má sjá hér fyrir neðan.
Blóðgjöf er Lífgjöf ❤ þegar Aníta Katrín fékk sína 3 Lifgjöf i gær á einungis 14 dögum sá ég ákall í fréttum frá…
Posted by Aslaug Fjóla Magnúsdóttir on Þriðjudagur, 16. júlí 2019
Sjá einnig: E.coli smit rakið til ferðaþjónustu í Efstadal