Jarðskjálftahrinan á Reykjanessvæðinu stendur enn yfir og eru vísbendingar um að gosórói sé farinn að gera vart við sig á svæðinu. Óróinn hófst kl. 14:20 suður af Keili, við Litla Hrút. Miklar líkur eru á að eldgos hefjist innan fárra klukkustunda.
Vísindamenn Veðurstofunnar hafa verið við mælingar á svæðinu síðustu daga en nú hefur þeim verið vísað frá að sögn þeirra sem eru á svæðinu.
Björgunarsveitir Suðurnesja eru í viðbragðsstöðu og er þyrlusveit Landhelgisgæslunnar einnig á sveimi yfir svæðinu. Þá er fólki bent á að halda sig innandyra og varað er við eitruðum loftegundum. Gefin hefur verið út appelsínugul viðvörun á alla flugumferð.
Blaðamannafundur verður haldinn kl 16 í dag.
Fréttin verður uppfærð.