Bifhjólasamtökin Sniglarnir munu á morgun efna til mótmæla vegna umferðarslyss sem varð á Kjalarnesi síðdegis í gær þar sem tveir létust þegar bifhjól og húsbíll á skullu saman. Þeir sem létust voru ökumaður og farþegi á bifhjólinu.
Með mótmælunum er bifhjólafólk að krefjast útbóta á vegarköflum sem hafa skapað hættu.
„Í ljósi atburðar sem kostaði mannslíf, erum við mótorhjólafólk búin að fá nóg. Við krefjumst þess að Vegagerðin á Íslandi muni þegar í stað gera úrbætur á þeim vegarköflum sem skapa hafa mikla hættu víðs vegar um landið. Mótmælin verða þögul en sterk, sýnum samstöðu í verk,“ segir í tilkynningu um mótmælin sem hefjast klukkan 13.00 á morgun, 30. júní.