Játning liggur fyrir vegna morðsins sem framið var í Rauðagerði þann 13. febrúar síðastliðinn, þar sem Armando Bequiri var skotinn til bana við heimili sitt.
Frá þessu greindi Margeir Sverrisson yfirlögregluþjónn á blaðamannafundi vegna málsins nú í dag.
Bequiri var skotinn níu sinnum meðal annars í höfuð og bol með fyrrgreindum afleiðingum. Skotvopnið staðfestir Margeir að sé fundið, en um er að ræða 22 kalíbera skammbyssu með hljóðdeyfi. Fannst skotvopnið í sjónum við höfuðborgarsvæðið í mars. Verið er að vinna í því hvort finna megi fingraför á morðvopninu.
Um skipulagt morð var að ræða, en sá sem játað hefur á sig verknaðinn kom hingað til lands frá Albaníu fyrir sjö eða átta árum. Talið er að þeir sem eigi mesta aðild að málinu komi frá Albaníu líkt og hinn látni.
Staðfestir Margeir að hinn látni hafi tengst skipulagðri brotastarfsemi.
Lögreglan vill ekki tjá sig um ástæðu morðsins, en telur sig þó vita hver hún sé.
Sjá einnig: „Morðið við Rauðagerði: Einn hinna handteknu á skammbyssu – Gaf sig sjálfur fram“