Angjelin Sterkaj var einn fjögurra albanskra manna sem tók þátt í hópslagsmálunum í miðborginni í september síðastliðnum þar sem Hander Maria de la Rosa stórslasaðist. Hann er morðinginn í Rauðagerðismálinu.
Játning liggur fyrir vegna morðsins sem framið var í Rauðagerði þann 13. febrúar síðastliðinn, þar sem Armando Bequirai var skotinn til bana við heimili sitt.
Maðurinn sem hefur játað á sig morðið á Armando er áðurnefndur Angjelin Sterkaj. Hann er einnig frá Albaníu og er fæddur árið 1986.
Hander Maria sagðist á sínum tíma hafa verið heppinn að hafa sloppið lifandi. Hann segði að árásarmennirnir hefðu reynt að stinga sig í höfuðið en hann hefði náð að koma hönd sinni fyrir þannig að hnífurinn rauf þar slagæð.
Sjá einnig: Fórnarlamb hópárásarinnar stígur fram – Árásarmennirnir albanskir – „Ég er svo feginn að vera á lífi“
Áður hafði sami hópur ráðist á Hander Maria með þeim afleiðingum að hann kjálkabrotnaði. Í kjölfarið kærði hann hópinn og segir hann seinni árásina hafa verið sökum þess að hann vildi ekki draga kæruna til baka.
Angjelin Sterkaj svaraði fyrir hópárásina og sagði að um sjálfsvörn hefði verið að ræða. Það hefði verið skipulagt að ráðast á þá með hnífum og kylfum í miðborginni. Angjelin sagðist jafn framt ekki skilja hví árásin hefði verið framin í miðbænum, fannst honum eins og um sýningu hefði verið að ræða: „Ef það eru vandamál milli mín og einhvers myndi ég bara finna þann aðila og berja hann. Af hverju í andskotanum ætti maður að gera það í miðjum miðbænum.“
Sjá einnig: Albanir svara fyrir hópárásina – „Þeir voru óheppnir að lenda á spítala, það er ekki okkur að kenna“