Skoðanapistli formanns Miðflokksins, sem birtist í Morgunblaðinu á laugardag, er hrósað í leiðara blaðsins.
„Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, fjallaði um mikilvægt málefni hér í blaðinu á laugardag í grein sem hann nefndi Sumarið 2020 og nýja menningarbyltingin. Í greininni rakti hann vaxandi áhrif pólitísks rétttrúnaðar og þöggunartilburða sem sjást víða um þessar mundir,“ segir í leiðara Morgunblaðsins, þar sem tekið er undir ýmislegt sem fram kemur í umræddum skoðanapistli Sigmundar Davíð Gunnlaugssonar formanns Miðflokksins. Fyrirsögn leiðarans er Frelsinu ógnað.
Í pistli Sigmundar Davíðs, sem er að finna í Morgunblaðinu á laugardag, fjallar formaður Miðflokksins um skaðleg áhrif pólitísks rétttrúnaðar og segir meðal annars hreyfinguna Black Lives Matter vera öfgahreyfingu sem elur á kynþáttahyggju. Skrif Sigmundar Davíðs vöktu mikla athygli og á samfélagsmiðlum hrósuði sumir skrifunum á meðan aðrir fordæmdu þau, meðal annars fyrir þá sök að lítilsvirða réttindabaráttu svarts fólks í Bandaríkjunum.
Leiðarahöfundur Morgunblaðsins er á annarri skoðun og tekur sérstaklega undir með þeirri skoðun Sigmundar Davíðs að mikilvægt sé að standa vörð um einstaklingsfrelsið. „Þetta eru afar mikilvæg sjónarmið sem allir þeir sem styðja frelsi einstaklingsins, þar með talið tjáningarfrelsið, hljóta að vilja standa vörð um. Í því sambandi er gott að hafa í huga orð Edmunds Burkes: „Það eina sem þarf til að illskan vinni sigur er að góðir menn aðhafist ekkert“.“