Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, telur líklegt á mótorhjólasamtökin Bandidos séu búin að festa sig í sessi hér á landi. Bandidos eiga uppruna sinn í Texas og voru þau stofnuð árið 1966.
Þá staðfestir Úlfar í samtali við mbl að nokkrum meðlimum samtakanna hafi verið vísað úr landi síðustu daga.
Engin vandræði hafi orðið þegar meðlimunum var vísað frá landi en lögreglan hefur eftirlit á landamærum og fylgist með komum einstaklinga til Íslands.
Bandidos eru þekkt víða um heim en talið er að starfsemi þeirra megi finna í á þriðja tug landa. Hafa samtökin þegar verið bönnuð í Þýskalandi og Hollandi.
Bandidos hafa komist í kast við lögin vegna skipulagðrar glæpastarfsemi, meðal annars á Norðurlöndunum.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem meðlimum Bandidos er vísað frá landi, en var fjórum meðlimum vísað frá landi árið 2015.