Guðmundur M. Þorsteinsson eða Mundi á Finnbogastöðum eins og hann var gjarnan kallaður, lést í nótt, 2. desember á gjörgæsludeild sjúkrahúss Akureyrar. Mundi var 78 ára að aldri.
Mundi bjó nánast alla ævi á Finnbogastöðum í Trékyllisvík þar sem hann var fjárbóndi en síðasta árið bjó hann á Sauðárkróki. Börn hans eru þau Guðbrandur, Linda, Þorsteinn og stjúpdóttirin Oddný.
Mundi var góður karl eins og flestir segja sem þekktu hann, rólegur og góður við fólkið í kringum sig. Þá var hann einstaklega hjálpsamur og greiðvikinn þegar leitað var til hans.
Hann varð fyrir því áfalli að gamli bærinn hans, Finnbogastaðir brann til kaldra kola árið 2008 en með samtakamætti sveitunga hans, náðist að safna nægu fé svo hann gæti byggt nýtt hús sem hann bjó í þar til hann flutti á Sauðárkrók. Morgunblaðið tók viðtal við Munda eftir brunann og spurði hann út í samtakamáttinn. „Ef eitthvað kemur upp á, þá rjúka allir til. Ef eitthvað kemur upp á standa menn hlið við hlið.“
Aðstandendur Munda vilja koma fram þakklæti til starfsfólks gjörgæsludeildar sjúkrahúss Akureyrar.
Mannlíf vottar aðstandendum samúð sína.