- Auglýsing -
Jóhann A. Kristjánsson á mynd dagsins. Reyndar er þar um myndaseríu að ræða sem hann birti á vegg sínum á Facebook þegar hann lenti að eigin sögn í hrikalegum hremmingum í miðborginni.
Í fyrradag rölti Jóhann í miðbæ Reykjavíkur og átti í stökustu vandræðum við að reyna viðhalda tveggja metra reglunni á göngu sinni um miðjan dag.
Eins og myndirnar sýna var enginn á ferli, miðborgin gjörsamlega tóm og ekkert líf þar að finna.