Hjartaskurðlæknirinn Tómas Guðbjartsson á mynd dagsins að þessu sinni. Hana birti læknirinn á Facebook þar sem hann var að auglýsa léttskíðanámskeið Ferðafélags Íslands.
Við mynd dagsins skrifar Tómas eftirfarandi texta:
„Enn eru nokkur pláss laus á fjallaskíðanámskeið Ferðafélags Íslands í byrjun næstu viku. Bóklegt mánudag og verklegt í Bláfjöllum kvöldið eftir. Áhersla verður lögð á súper-léttan búnað. Um aukanámskeið er að ræða því fyrra námskeið bókaðist einn tveir og búmm. Myndin er tekin af einum umsjónarmanni námskeiðsins að kenna fyrri hópnum í Bláfjöllum, en sjálfur var ég seinn fyrir vegna aðgerðar.“